Sprengifimt umhverfi
Slökkva skal á tækinu á svæðum þar sem kann að vera
sprengihætta. Farðu eftir leiðbeiningum sem gilda hverju
sinni. Neistaflug á slíkum svæðum getur valdið sprengingu
eða eldi og haft í för með sér slys og jafnvel dauðsföll. Slökkva
skal á tækinu á eldsneytisstöðvum, svo sem við
eldsneytisdælur á bensínstöðvum. Virða skal takmarkanir í
eldsneytisgeymslum, svæðum þar sem geymsla og dreifing
eldsneytis fer fram, efnaverksmiðjum eða þar sem verið er að
sprengja. Svæði þar sem kann að vera sprengihætta eru oftast
auðkennd en þó ekki alltaf. Þar á meðal eru svæði þar sem
ráð gæti verið að slökkva á vél bifreiðar, í farrýmum skipa, í
efnageymslum eða við efnaflutninga og þar sem efni eða
agnir, s.s. ryk, sót eða málmduft gæti verið í lofti. Þú ættir að
leita upplýsinga hjá framleiðendum farartækja sem nota
jarðgas (líkt og própan eða bútan) til að ákvarða hvort hægt
sé að nota þetta tæki á öruggan hátt nálægt þeim.